Óvenjuleg samviskusemi og dugnaður

Þetta er með ólíkindum – þvílíkur þverhaus er þessi fjandans maður!

Ég var að lesa svarbréf Davíðs Oddsonar til forsætisráðherra og ég er nánast undrandi, jafnvel þótt um Davíð Oddson sé að ræða.

Hann heldur því fram að ástæða þess að hann sé beðinn um að fara sé fyrst og fremst að hann sé lögfræðingur en ekki hagfræðingur!?! Honum er sem sagt gersamlega ómögulegt að skilja að hans starfskrafta sé ekki lengur vænst vegna þess að hann hafi sýnt að hann er ekki starfinu vaxinn sem einstaklingur! Þessi maður er svo blindur að hann sér ekki hjá sér EINA EINUSTU SÖK á því ástandi sem íslendingar eiga við að etja – ekki eina einustu.

Lesið þetta kæru lesendur:

 

“Heift út í gamla pólitíska andstæðinga sem einhverjum finnst þeir eiga

óuppgerðar sakir við má ekki blinda fólk svo að það geti ekki séð einni

mikilvegustu stofnun landsins borgið med pvi að hafa lagaumgjörðina

um hana vandaða og unna í sæmilegri sátt, jafnt innan þings sem utan.”

 

- sæmilegri sátt – hlægilegt! Heldur maðurinn virkilega að það varði ”sæmileg sátt” við áframhaldandi veru hans sem Seðlabankastjóra? Hvar hefur þetta manngrey alið manninn undanfarið?

 

Eða þetta:

“Fyrir fáeinum vikum urðu mönnum á stjórnsýsluleg afglöp, þegar

brotthlaupinn ráherra skildi Fjármalaeftirlitið eftir stjórnlaust,”

 

Það er sem sagt fyrst þá sem verða “stjórnsýsluleg afglöp”, þau hafa ekki orðið fyrr og væntanlega ekki á vettvangi Seðlabankans; ekki t.d. þegar aumkunarverð tilraun til að frysta gengið var gerð eða þegar stýrivextir voru lækkaðir í nokkra daga og svo hækkaðir aftur upp í 18% og það var náttúrulega ekkert rangt við viðbrögð Seðlabanka varðandi bankahrunið eða aðdraganda þess?

Hann heldur meira að segja áfram í bréfinu og segir að uppsögn stjórnar Fjármálaeftirlitsins hafi orsakað verulegan skaða!!! Já sem sagt bara ef að það hefði ekki verið gert þá værum við í mun betri málum nú ekki satt?

 

Davíð spyr: “Hvers vegna i ósköpunum ætti

bráðbirgðastjórn, sem þess utan er minnihlutastjórn, að ganga svo til

verks einsog gert er?”

Ég skal segja þér það – vegna þess að það er órfávíkjanleg KRAFA almennings að þeir sem bera ábyrgð á ástandinu, og þar ert þú svo sannarlega ekki undanskilinn sem Seðlabankasrjóri, veði látnir mæta ábyrgð og víkja. Ertu ekki í jarðsambandi maður? Heldurðu virkilega að þú getir verið stikkfrí – ekkert sé þér að kenna – að þetta sé bara allt saman út af ”hinni alþjóðlegu bankakreppu” og vegna óheppni? Þú berð ábyrgð og átt að sæta ábyrgð, það er eðli þess embættis er þú hefur sjálfur sett þig í!

 

Ég hef áður sagt að Davíð Oddson hugsar í sögubókarformi. Hann vill ekki fá þann blett á sinn ”sigursæla” feril í íslenskri pólitík að hann endi á brottrekstri. Þetta sannast á þessum ummælim hans:

 

” Verði sá gerningur sá eini sem upp úr ferli Jóhönnu

Sigurðardóttur stendur sem forsætisráðherra, að flæma vammlausan

embættismann úr starfi, sem hann hafði stundað af óvenjulegri

samviskusemi og dugnaði, þá á hún alla mina samúð.”

 

Hugsið ykkur! Og takið eftir orðalaginu – óvenjulegri samviskusemi og dugnaði [sic].

Já Ingimundur og félagar í Seðlabankastjórninni hafa sinnt starfi sínu af svo mikilli samviskusemi og dugnaði að það er barasta óvenjulegt!

 

Jæja greyið – þú hefur nú lýst yfir stríði á hendur þjóðinni og nú muntu fá að sjá hvað í henni býr.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Mér líst ekki á óstandið.

Offari, 8.2.2009 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband